FORDEILD
17. - 21. júní 2026
Fordeild HIMA er hljómsveitarnámskeið ætlað strengjanemendum frá 7 ára aldri. Æskilegt er að nemandinn hafi lokið 2. stigi eða sambærilegu námi.
Dagskrá námskeiðs er frá kl 9 - 11:45.
Á námskeiðinu verður unnið með fjölbreytt verk, farið í tónlistarleiki og nemendur fá að spreyta sig í stjórnendahlutverkinu.
Námskeiðinu lýkur með tónleikum í Eldborgarsal Hörpu þar sem hljómsveitin flytur afrakstur vinnunnar fyrir tónleikagesti.
Umsækjendur skulu senda upptöku af einu verki að eigin vali. Setjið upptökur á streymisíðu, t.d. YouTube og setjið hlekkinn í umsóknina. Ekki er tekið við upptökum sem viðhengi í tölvupósti. Upptakan verður að berast fyrir lok umsóknarfrests, 1. apríl.
NÁMSKEIÐSGJALD: 40.000 KR.
VEITTUR ER 10% SYSTKINAAFSLÁTTUR
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 1. apríl 2026
Kennarar fordeildar
Anna Hugadóttir
Deildarstjóri foreildar HIMA og kennari