Miðdeild PLÚS - 4 dagar

14. - 17. júní 2024

Miðdeild PLÚS í HIMA er hugsuð sem viðbót fyrir þá nemendur sem skráðir eru í Miðdeild en vilja gjarnan vera lengur á námskeiðinu og fá fleiri einkatíma.

Á námskeiðinu fá þátttakendur:

  • Einkatíma, 3x 45 mín

  • Æfingaherbergi á hverjum degi og aðstoð við æfingar

  • Hádegismat (matur innifalinn) ásamt öllum nemendum og kennurum

Þátttakendur mæta daglega kl 8:00 og fá æfingaherbergi fram að hádegismat sem er innifalinn. Kennarar miðdeildar eru þeir sömu og í eldri deild.

Umsækjendur skulu senda upptöku af tveimur ólíkum verkum, minnst 10 mínútur samtals.

Setjið upptökur á streymisíðu, t.d. YouTube og setjið hlekkinn í umsóknina. Ekki er tekið við upptökum sem viðhengi í tölvupósti. Upptaka verður að berast fyrir lok umsóknarfrests, 1. mars.

Námskeiðsgjald: 26.000 kr.

umsóknarfrestur er til 1. mars 2024

Kennarar í Mið- og Eldri deild

Fiðla

Ari Þór Vilhjálmsson
Leiðari 2. fiðlu við Israel Philharmonic

Auður Hafsteinsdóttir
Kennari í Menntaskóla í Tónlist og Tónskóla Sigursveins

Elfa Rún Kristinsdóttir
fiðluleikari

Guðný Guðmundsdóttir
Heiðursprófessor við Listaháskóla Íslands

Judith Ingólfsson
Prófessor við Peabody Institute, Johns Hopkins University í Baltimore

Sif Margrét Tulinius
Kennari við Tónlistarskóla Kópavogs og Listaháskóla Íslands

Sigurbjörn Bernharðsson (Sibbi)
Prófessor í fiðluleik við Oberlin Conservatory


Víóla

Þórunn Ósk Marinósdóttir
Leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Ásdís Valdimarsdóttir
Kennari við Konunglega tónlistarháskólann í Haag

Selló

Mick Sterling
Kennari við Amsterdam Conservatory

Sigurgeir Agnarsson
Leiðari sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sigurður Bjarki Gunnarsson
Sellóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennari við LHÍ


Meðleikarar

Þóra Kristín Gunnarsdóttir
píanóleikari